5. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 25. september 2015 kl. 09:30


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 09:30
Guðmundur Steingrímsson (GStein) 1. varaformaður, kl. 09:36
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 09:30
Haraldur Einarsson (HE) fyrir Karl Garðarsson (KG), kl. 09:30
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:30
Hörður Ríkharðsson (HR) fyrir Guðbjart Hannesson (GuðbH), kl. 09:30
Svandís Svavarsdóttir (SSv) fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur (BjG), kl. 09:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:58

Jóhanna María Sigmundsdóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Dagskrárlið frestað.

2) Staða fangelsismála á Íslandi. Kl. 09:32
Á fund nefndarinnar komu Sigurjón Birgisson, Valdimar Þórisson og Jón Þór Kvaran fangaverðir á Litla- Hrauni. Fóru þeir yfir stöðu fangelsismála á Íslandi og svörðuðu spurningum nefndarmanna.

3) 16. mál - styrking leikskóla og fæðingarorlofs Kl. 10:20
Borin var upp sú tillaga að Guðmundur Steingrímsson yrði framsögumaður málsins. Það var samþykkt.

4) Önnur mál Kl. 10:25
Fleira var ekki rætt.

Fundi slitið kl. 10:25